Með Hækkandi Sól

Með Hækkandi Sól

Systur

Öldurót í hljóðri sál
Þrautin þung umvafin sorgarsárum
Þrá sem laðar, brennur sem bál

Liggur í leyni
Leyndarmál
Þei þei

Í ljósaskiptum fær að sjá
Fegurð í frelsi sem þokast nær
Þó næturhúmið skelli á
Og ósögð orð, hugan þjá
Þei þei

Í dimmum vetri – hækkar sól
Bræðir hjartans klakabönd – svo hlý
Í dimmum vetri – vorið væna
Vermir þitt vænghaf á ný

Skammdegisskuggar sækja að
Bærast létt með hverjum andardrættir
Syngur í brjósti lítið lag
Breiðir úr sér og andvarpar
Þei þei

Í dimmum vetri – hækkar sól
Bræðir hjartans klakabönd, svo hlý
Í dimmum vetri, vorið væna
Vermir þitt vænghaf á ný

Og hún tekst á flug
Svífur að hæstu hæðum
Og færist nær því
Að finna innri ró

Í dimmum vetri – hækkar sól
Bræðir hjartans klakabönd, svo hlý
Í dimmum vetri, vorið væna
Vermir þitt vænghaf á ný

Comentarios

Deja tu comentario:

Noticias de interés

Últimas noticias musicales

Reportar letra